Bókanir - Skrá bókun

Breytt Thu, 17 Okt kl 10:42 AM


Í þessu vidjói þá förum við yfir hvernig skal búa til staka bókun og hópabókun

*athugið að vidjóið er á ensku


Byrjum á að fara yfir hvernig við búum til staka bókun.


Það eru tvær leiðir í kerfinu til að búa til bókanir. Það er hægt að smella á "Add Booking" uppi í hægra horninu(sama á við um Group Booking) eða þá smella á litla ferðatöskumerkið í dagatalinu og búa til bókun beint þaðan. Með því þá ertu að velja dagsetninguna í leiðinni sem þú vilt bóka. 


Kerfið mun setja bókunina sjálfkrafa í fyrsta lausa herbergið, þannig það er óþarfi að velja herbergi. 


Það er mjög mikilvægt að velja skuldunaut úr skuldunautalista þegar það er búið til bókun. Kerfið sækir verð sjálfkrafa útfrá hvaða skuldunaut er valið þegar það er bókað. Einnig hefur þetta áhrif á skýrslugerð í kerfinu ef allar bókanir eru á réttum skuldunaut. 


Svo má bæta við öllum þeim upplýsingum sem þarf og maður hefur, svo er einfaldlega smellt á "Save" eða "Continue" til að ganga frá bókun. 

 

Nú skulum við skoða hvernig við búum til hópabókanir.


Þegar við búum til hópabókun þá er það sama aðferð til að byrja með. Það er hægt að smella á takkann uppi í hægra horninu eða smella á ferðatöskumerkið í dagatalinu og þaðan smella á "Create Group Booking" í bókunarspjaldinu. 


Það þarf að passa að "number of adults" er fjöldi gesta í HVERJU herbergi fyrir sig en EKKI heildarfjöldi gesta í hópnum. 


Svo er sama regla hér og með stakar bókanir, það þarf að velja skulduanaut til að fá rétt verð á bókanir og það er gert með því að smella á gluggann sem er beint fyrir ofan "Search" hnappinn í ferlinu. Þá færðu upp herbergin fyrir neðan með því verði sem á að bóka á, maður velur herbergin og magnið af þeim í fellilista og smellt síðan á innkaupakörfuna til að safna þeim saman. 


Þegar það er komið, þá smellum við á "Book" fyrir neðan allan listann og þá kemur upp sami gluggi til að setja inn allar upplýsingar sem við höfum líkt og í stakri bókun. Að því loknu smellum við á "Create" neðst niðri.





Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina